Pictures taken yesterday of the dogs :) 02/05/2012
Add Comment Jæja komið að smá myndum :) 01/14/2012
Nokkrar myndir / New pictures :) 12/11/2011
Alþjóðleg hundasýning um helgina!! 11/21/2011
Vá hvílik sýning nýji strákurinn okkar hann Ajax sem var að koma úr einangrun vann Besti rakki,Besti hundur tegundar,sigraði tegundarhóp 1 og endaði sem fjórði besti hundur sýningar!! Ajax fékk Íslenskt meistarastig og Alþjóðlegt meistarastig. Ajax gerði allt þetta aðeins 3 dögum eftir að hann kom úr einangrun!! Lýsir geðslaginu í þessum hundi fullkomnlega hversu sterkur hann er því að hann hefur aðeins þekkt okkur í 3 daga og vill ALLT fyrir okkur gera .SNILLINGUR :) Rakkar Bethomin´s Ajax Excellent,m.stig,Cacib besti rakki,besti hundur tegundar besti hundur í th1 og besti hundur sýningar fjórða sæti. ISCH Gunnarsholts Joop fékk very good Tíkurnar: Gunnarsholts Vanessa fékk Excellent ISSCH Gunarsholts Trix fékk Excellent og er Stigahæsta schafer tíkin 2011!! Gunarsholts Queen fékk Excellent Sleggjubeina Z-Esja fékk Excellent Gunnarsholts Angelita fékk Very good og True-Bliss Royal Reina (Istans og Queen dóttir) fékk Excellent,meistaraefni og varð önnur besta tík tegundar! What a show Inger and Øystein youre boy really did it and got CERT,CACIB,BOB,BIG and BIS 4. Thank you soooo much for trusting me with youre fantastic boy ..here are some pictures for you click on them to make them larger Luv Disa .. SchH3 BH AD kkL1 Betomin´s Ajax 11/19/2011
Jæja þá er komið að því að kynna nýjasta fjölskyldumeðliminn hjá okkur. Hann Heitir Bethomin´s Ajax og kemur frá Noregi . Ajax er með þýska vinnuprófið Schh3 , þýska Skapegerðamatið BH, þolpróf AD og síðast enn ekki síðst þýskan ræktunardóm kkl1.Hann hefur ekki verið mikið sýndur enn er þegar kominn með 1 meistarastig í Noregi. Ajax kom bara úr einangrun fyrir 3 dögum og er einsog hann hafi alla tíð búið hjá okkur. Hann er með einstaka skapgerð ,mikinn vinnuvilja og virkilega vel gerður hundur. Ajax er mjaðma-og olnboga myndaður og er hann FRÍ í báðu! Mjaðma-og Olnboga níðurstöður 10/31/2011
Tveir hundar voru að fá mjaðma-og Olnboga niðurstöður: Og teljast þau nú bæði ræktunarhæf í framtíðinni. - ISCch Gunnarsholt´s Trix HD B (Frí) og ED A - Gunnarsholt´s Tristan HD C (öðru meiginn) ED A Óskum við við eigendum þeirra innilega til hamingju með þessar niðurstöður með von um bjarta framtíð. Gunnarsholts Vanessa 10/23/2011
Nýtt útlit og nýjar myndir :) 09/28/2011
Tókum okkur til og breyttum aðeins útlitinu á síðunni svona í tilefni af skemmtilegum tíma framundan :-) Fórum og tókum nokkrar haust myndir af stelpunum Gunnarsholts Vanessu,Gunnarsholts Angelitu og Gunnarsholts Queen sem er hjá okkur í pössun. Gunnarsholts Senjorita aka Urður!! 09/18/2011
Þann 14 september gerðist hræðilegt slys! Hvað gerðist nákvæmlega veit enginn en Urður varð viðskila við eigendur sína og fannst hún dáinn eftir 9 tíma leit, undir 40 til 50 metra háum klettum. Líklegt er að henni hafi skrikað fótur og runnið niður, því yfirborð klettanna er mjög sprungið og losnar við minnsta átak. Urður Kláraði A gráðuna í viðavangsleit þann 11 september með glæsibrag með henni Önnu þórunni., voru þær stöllur búnar að ná frábærum árangri hjá Björgundahundasveit Íslans og þær saman búnar að vinna saman í 4 ár. Urður var einnig búin að gera mjög góða hluti á sýningum Hrfí og var þegar komin með eitt meistarastig og var önnur besta tík á síðustu sýningu! Þetta er gríðalegur missir því að Urður var ein með öllu!! Frábær vinnuhundur,fjölskylduhundur,sýningarhundar og einstök mamma. Hún hafði eignast 1 got alls 4 hvolpa sem eru í alla staði yndisleg( Gunnarsholts V-gotið) og eiga eftir að verða móður sinni til sóma :) Urður aka Gunnarsholts Senjorita var undan ISCH ISW-07 SchH1 kkl1 Gildewangen´s Istan og ISscH Gunnarsholts Enólu og var aðeins 4 ára gömul. Elsku Eyþór,Anna þórun,Bylur og fjölskylda samhryggist ykkur innilega , takk fyrir að hafa hugsað svona vel um hana .......betra heimili og fjölsylda er ekki til . |
















































































